Iva (IS)
Oculis Videre
Gott og illt í heimi er
Allt sem veldur angist þér
Veröld sér mín æðri sýn
Hið sanna gegnum lygi skín

Oculis videre
Volentibus ero
Oculis videre
Volentibus ero

Tvær árþúsundir liðnar hjá
Framtíð mannkyns myrk að sjá
Þú spyrð mig ráðs og vilt fá svar
En svar mitt drukknar í óttans mar

(Oculis videre) Nú stormur herjar landi á
(Volentibus ero) Senn mun gríman falla frá
(Oculis videre) Tíminn nú á enda er
(Volentibus ero) Breytist annars illa fer

Oculis videre
Volentibus ero
Oculis videre
Volentibus ero

(Oculis videre) Meinlegt mannlegt eðli er
(Volentibus ero) Kaflaskil ég boða hér
(Oculis videre) Kærleikur er lífsins stoð

Þetta eru mín skilaboð