Bubbi Morthens
Stórir strákar fá raflost
Þeir hringdu í morgun
Sögðu að Lilla væri orðin óð
Að hún biti fólk í hálsinn
Drykki úr þeim allt blóð
Hún hafði sagt, hún gæti ekki dottið
Hún hefði engan stað til að detta á
Hún sagðist breytast í leðurblöku
Að hún flygi um loftin blá

Læknirinn var miðaldra
Augun í honum voru grá
Hann djönkaði sig með morfíni
Sagðist hafa unnið hér í 15 ár
Þá órólegu geymdu á deild
Sem var sérhönnuð fyrir þá
Það átti að setja Lillu í raflost
Hann bauð mér að horfa á

Stórir strákar fá raflost
Stórir strákar fá raflost
Stórir strákar fá raflost

Gangastúlkurnar hvæstu og sýndu sér tennurnar
Þær skipuðu mér að fara í rúmið
Sögðu: "Tími kominn á pillurnar"
Ég sagði þeim að ég væri gestur
Að ég væri á leiðinni heim
Þær skelltu mér með látum í gólfið
Sögðu svo: "Þú ert einn af þeim!"
Á kvöldin kemur læknirinn
Og segist vera vinur minn
Segir: "Þú verður að vera rólegur
Þú æsir upp öll hin"
Segir að ég sé tveggja ára meðferð
Hann býður mig velkominn
Segir á morgun fái ég raflost
Svo ég verði eins og öll hin

Stórir strákar
Fá ra-a-aflost
Stórir strákar
Fá ra-a-aflost
Stórir strákar
Fá ra-a-aflost
Stórir strákar
Fá ra - a - aflost