Efast

from Afsakið Hlé (2018)
[Hook: Króli]

Já ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast
Já ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast



[Verse 1: JóiPé]

Já, ayy

Ég veit ekki hvað ég á nú að gera

Hver er ég? Hver vil ég svo verða?

Sama hvað ég geri, ég hætti ekki að efast

Langar helst bara að leggja allt til hliðar

Ó, nei, allt virðist litalaust

Ó, nei, ekki lífið sem ég kaus

Tímarnir breytast og mennirnir þeir með

En tíminn minn er stopp svo ég fylgist bara með

Ég svíf um, hvenær mun ég lenda?

Mun ég hrapa, mun þetta enda?

Svo hátt uppi, dansa bara á rósum

Eða er mig að dreyma, slökkt á ljósum?

Ég svíf um, hvenær mun ég lenda?

Mun ég hrapa, mun þetta enda?

Svo hátt uppi, dansa bara á rósum

Eða er mig að dreyma, slökkt á ljósum?



[Hook: Króli]

Já ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast

Já ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast



[Verse 2: Króli]

Fyrirhuguð ímynd allra um hvað ég er orðinn

Fyrirgefðu elskan mín, ég meinti ekki orðin

Sem ég sagði, sem ég orti til þín

Lífið, það tók beygju þegar þú brostir til mín

Dimmir dagar urðu bjartir á augnabliki

Held þú skiljir ekki hvað ég hugsa um þig mikið

Vilji minn, hann glataðist við upphafið á ströndun

Vitneskjan mín grandaðist og eftir tvö við stöndum



[Hook: JóiPé og Króli]

Og ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast

Já ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast

Veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast

Já ég veit ekki hvað er að gerast

Sama hvað ég geri, hætti ekki að efast

More from Afsakið Hlé (2018)

More by JóiPé x Króli

All JóiPé x Króli songs →