Nunquam Iterum, Op. 12

from Neyslutrans (2020)
Þú tæmdir allt þitt traust á mér
Þó tórir enn mín ást á þér
Sagan endar allt of skjótt
Þú bauðst mér aldrei góða nótt
Svikin voru silkimjúk
Sængin tóm og vænisjúk
Í þögn þú komst og þögul út
Þú þræddir veginn niðurlút

Grá ský eru gráti nær
Þig dreymi ég nú angurvær
Í minninganna vígðu borg
Í mæðu feta hulin torg

Mig óraði ekki fyrir því
Að aldrei sæjumst við á ný
Mig óraði ekki fyrir því
Að aldrei sæjumst við á ný
Mig óraði ekki fyrir því
Að aldrei sæjumst við á ný

More from Neyslutrans (2020)

More by Hatari

All Hatari songs →