[Verse 1]
Mild döggin er
Að morgni hún skín
Þegar sólin baðar græna grund
Gefur okkur dýrðarstund
Bætir heim og léttir lund
[Verse 2]
Sjá fagran dag
Þá fólk í vinnu er
Heyra má nú víða vélagný
Veröld breytist óðum í
Eitthvað hverfult enn á ný
[Chorus]
Er kvölda tekur ævintýrin opna hlið
Og óskirnar þær rætast munu um lágnættið
[Verse 3]
Svo lifnar nótt
Fer léttfætt yfir jörð
Litlar stjörnur depla augum á
Upphimni og virðast þá
Yfir veröld alla sjá
[Chorus]
Er kvölda tekur ævintýrin opna hlið
Og óskirnar þær rætast munu um lágnættið
[Instrumental Break]
[Chorus]
Nú glymja högg og hömrum lyfta vanir menn
Og heimurinn mun verða í smíðum lengi enn
Þú skalt hugsa um allan heiminn eins og heild
Og aldrei líta á landið þitt sem einkadeild