Valdimar
Þessir Menn
[Verse 1]
Farðu að hugsa, farðu að hugsa
Farðu að hugsa systir góð
Fylliraftar og vitleysingar gera engum konum bót
Þín viska ætti að vera meiri en það
Þessir menn sem að þú umgengst
Eiga ekki skilið neitt
Þína fyrirgefningu fá þeir þó oftast yfirleitt
Þín góða lund, er úttröðkuð af flóns skóm

[Chorus]
Þú átt svo mikið betra skilið
Reyndu nú að brúa bilið
Þeir blinda sýn þín og binda sál þína
Ekki hlusta á þá, þeir reyna að sýna þér hlið sína
Þeir kynda bál úr neista, ekki ylja þér þú veist það
Þín ást og alúð nýta, og vandamál sín hnýta
Í gegnum þig, vertu sterk, vertu hugrökk, vertu þú

[Verse 2]
Átt ekki að gera fyrir þá sem ekki gera fyrir þig
Ekki hægt að bjarga leikurum sem auma leika sig
Sumum mönnum verður ekki breytt
Farðu að hugsa, farðu að hugsa
Farðu að hugsa systir mín
Þessir menn eru engir dýrðlingar, breyta ekki vatn í vín
Þín litla tá er stærri en þessir menn
[Chorus]
Þú átt svo mikið betra skilið
Reyndu nú að brúa bilið
Þeir blinda sýn þín og binda sál þína
Ekki hlusta á þá þeir reyna að sýna þér hlið sína
Þeir kynda bál úr neista, ekki ylja þér þú veist það
Þín ást og alúð nýta, og vandamál sín hnýta
Í gegnum þig, vertu sterk vertu hugrökk vertu þú
Þú átt svo mikið betra skilið
Reyndu nú að brúa bilið
Þeir blinda sýn þín og binda sál þína
Ekki hlusta á þá þeir reyna að sýna þér hlið sína
Þeir kynda bál úr neista, ekki ylja þér þú veist það

[Outro]
Þín ást og alúð nýta, og vandamál sín hnýta
Í gegnum þig, vertu sterk vertu hugrökk vertu