Gísli Pálmi
Úrið mitt er stopp pt. 2
(Verse 1: Arnar)
Ég er að missa vitið
Ég er ekki í takt
Ég sé ekki strikið
Svo ég fer yfir það
Ég handleik augnablikið
En horfi ekki fram
Ég safna ekki ryki
Ég er á ferð og flugi mothafucka
Og ef ég stoppa mun ég loksins geta sofnað
En ef ég sofna mun ég óðar byrja að rotna
Og ef ég rotna mun ég úrkynjast og klofna
Þetta er að ferðasaga um sigur og missi
Sem að ég rita með typpinu
Um langar nætur og drykki
Erfiðan morgun í myrkrinu
Er forvitnari en Mikki ég safna litríkum minningum
Mæti á svið á einhyrning og sýni stóíska stillingu
Því ég geri það sem ég vil, geri það sem ég vil
En veit ekki hvað ég vil
Á sama tíma og mér býður við mannverunni
Er ég óviss um að það sé samt nokkuð fegurra til
Ég boða frið en er til í stríð
Ég reyki ekki en er til í weed
Gefðu mér sykur og dýnamít
Legg líf mitt að veði
Ekkert stress
Shout out á Satan
666

(Viðlag)
Bara ég mothafucka
Skrifa einungis um það sem ég sé mothafucka
Sit í sófa, samt innan um tré mothafucka
Hell yeah mothafucka
Bara ég mothafucka
Flýgur um með tígulegt stél mothafucka
Reyni samt að haga mér vel mothafucka
Bara ég mothafucka


(Verse 2: Helgi)
Glæðið mig lífi
Ég er á landamærum svefns og vöku og tíminn er stopp
Því ljósið nær ekki á þetta dýpi, ég fæ mér annan sopa og loka augunum
Lífið er gott
En með hverju skrefi sem ég tek í átt að því sem betra er
Þá færist ég um leið frá öllu því sem að ég þekki vel
Grasið er svo grænt á hinum bakkanum
Og lækurinn er grunnur svo að ég þarf ekki að vaða djúpt
En úrið hans Bernharðs er fokking bilað
Tíminn er sprettharðari en allt og ég silast
Sekúndur verða ár
Og ég er enn að sleikja sár
Sem ég jafna mig ekki á
Svo ég leyfi mér ekki að lifa
Ég var alinn upp við varkárni og væntumþyggju
Ævintýrum í hóf stillt og ég var aldrei slæmur piltur
En er nóttin kom, og þetta er það sem fæstir vissu
Lifnaði eitthvað innra með mér og ég braust úr læstri kistu
Svo plís, glæðið mig ég lífi
Mér er sama hvort ég er ungur eða hvort ég er fokkt
Því ekkert lifir á þessu dýpi
Ég fæ mér annan sopa og loka augunum
Því það er gott

(Viðlag)
Bara ég mothafucka
Skrifa einungis um það sem ég sé mothafucka
Sit í sófa, samt innan um tré mothafucka
Hell yeah mothafucka
Bara ég mothafucka
Flýgur um með tígulegt stél mothafucka
Reyni samt að haga mér vel mothafucka
Bara ég mothafucka


(Verse 3: Gísli Pálmi)
Get ekki sofið
Tel sekúndubrotin
Orðinn svo dofinn
Oxy við klofið
Öll spilin á borðið
Þótt ég hverf' inn í storminn
Allt sem ég þoldi
Orðinn svo frosinn
Brotinn eftir gönguna ég féll oní' sporin
Tilfinningar eins og orgel
Spilandi á mig
Hvert kvöld fram að morgni
Allt er á hvolfi
Hvað er ég orðinn?
Hef oft fundið botninn en hvert er ég kominn?
En ég held mér á floti
Bara smá meira morfín
Fljótur að festast í klandri
Og hverf'inn í transinn
Og fresta mínum degi til að verða'ð manni
Fastur á tímamótum sem líða aldrei hjá
Svo ég fæ mér aðeins meira til að þurf'ekki að þjást
Þurf'ekki að finna
Finna fyrir neinu nei ég vill ekkert meira
Ekkert meira'f þessu nei ekki meira'f mér
Ég þoli ekki sjálfann mig svo ég leita'f öðru ástandi
(Viðlag)
Bara ég mothafucka
Skrifa einungis um það sem ég sé mothafucka
Sit í sófa, samt innan um tré mothafucka
Hell yeah mothafucka
Bara ég mothafucka
Flýgur um með tígulegt stél mothafucka
Reyni samt að haga mér vel mothafucka
Bara ég mothafucka