BALLIN

[Verse intro]

Eins og körfuboltamaður er ég BALLIN

Í tónlist er all in

Uppfylli óskir - andinn í aladin

Er þetta daman þín? óóó afsakið sorrí!

Hafði ekki hugmynd um það

Nú er best fyrir mig að hlaupa af stað

Er ég hleypi af rímum eins og haglabyssa



[Vers]

Og ég geri þetta shit

Meika nokkur hits

Þetta er algjör snilld

Þetta er frekar villt

Ekki stöð 2 vild

Ekkert stöðvar mig

Né þetta spit

Það er gott eins og bananasplit

Stelpur vilja bananann minn

Sem ég keypti út í búð handan við hornið

Hita upp ofninn - baka þessar rímur

Lyfti þeim upp

Nota lyftiduft og gott beat beat-a þig eins og sigurvegari

Spyrni á móti - nota hornin

Turna upp svo enginn sofni

Tónlist í botni

Ég er til í djammið

Tilbúinn að fara inn

Þannig var ég búinn til

Sáðlát þegar þið heyrið GKR spitta yfir þetta shit

Þennan skít, fleiri lík, morðingi - rapparana ég myrði

Hver vissi að strákurinn gæti gert þetta shit?

Þetta shit fer að verða hit

Frekar sterkt en ekki milt

Ég stend út eins og svalir

Geri það sem enginn bjóst við

Einhver þarf nú að vara sig

GKR aðeins 3 stafir

Ekki erfitt að muna fyrir þig

Okei þetta er bara byrjunin

Ég kom á fullu er ég þá fullkominn?

Er eins og opinn gluggi í óveðri - ég veiti innblástur

Tjillandi killandi versin mín

Tjillandi myrðandi allt það sem lífið leggur fyrir, fyrir hvað er ég að gera þessa músík?

Æj skiptir engu máli hækkaðu bara í þessu maður, shit



[Hook]

Ey, ég kom ekki hingað í kvöld

Til þess að fokking slaka á

Nei

Sko mér vil bara líða vel

Svo í kvöld ætlum við að hafa gaman látum allt saman rætast

Við látum allt þetta gerast

Við látum allt saman rætast



Ey, ég kom ekki hingað í kvöld

Til þess að fokking slaka á

Nei

Sko mér vil bara líða vel

Svo í kvöld ætlum við að hafa gaman látum allt saman rætast

Við látum allt þetta gerast

Við látum allt saman rætast