Una Torfa
Ef þú kemur nær

[Verse 1]
Það fjarar út
Sólin sest en ekki þú
Stendur, gengur
Vertu hér lengur
Hvað ert þú að hugsa
Viltu deila því með mér?
Nei ókei, þá byrja ég

[Verse 2]
Hélstu að
Ég vildi endurskapa það
Sem við þekkjum?
Nei, allt sem við gerðum
Kenndi okkur að elska og kveðjast
Nú erum við hér
Og við sjáum hvernig fer

[Chorus]
Ég hef engan áhuga á að
Toga þig niður á jörðina
Viljum bæði vera frjáls
En hvernig fyndist þér að leyfa mér
Að fljúga stundum við hliðina á þér?
Væri það svo slæmt?
Ég veit að þetta er hægt
Ef þú kemur nær
[Verse 3]
Ég reyni að
Hætta að greina og lesa í allt
Þora, treysta
Leita og finna
Það þýðir ekki neitt
Að giska á hvernig það fer
Við еigum bara þetta hér

[Chorus]
Ég hef engan áhuga á að
Toga þig niður á jörðina
Viljum bæði vеra frjáls
En hvernig fyndist þér að leyfa mér
Að fljúga stundum við hliðina á þér?
Væri það svo slæmt?
Ég veit að þetta er hægt

[Bridge]
Við þurfum ekkert að fljúga mjög hratt
Við gætum líka bara svifið
En mundu að

[Chorus]
Ég hef engan áhuga á að
Toga þig niður á jörðina
Viljum bæði vera frjáls
En hvernig fyndist þér að leyfa mér
Að fljúga stundum við hliðina á þér?
Væri það svo slæmt?
Ég veit að þetta er hægt
Ef þú kemur nær
Ef þú kemur nær
Ef þú kemur nær