Hér er nóg

Dagur er að kveldi
Komdu hingað inn
Hér er nóg af eldi
Hér fæst draumurinn

Myndir bíða í glasi
Í pípu bíður svefn
Ef blandar þessu saman
Þá kemst engin í gegn

Ég garentera friðin
Og falleg undirföt
Og grúví gæfa læðu
Sem galdrar á þig göt

Svífur þú á skýi
Skrattakollurinn
Hér er nóg, hér er nóg
Hér er meira en nóg

Borgar þú með korti
Eða gildir seðillinn
Lykla-Pétur fer að loka
Á himnareikninginn