Konur og vín

Hvað er það sem fellir menn?
Konur og vín
Í gegnum aldir og gerir enn?
Konur og vín

Allar konur hafa tíma
Kannski fæðast þær með síma
Glær vökvinn viljann étur
Viljalaus þú ekkert getur

Sálarskipið á skeri strandar
Skrítið, líkið ennþá andar
Konur konur gefið frið
Kafaldsöldur falla á hlið

Hlustar þú á sönginn blíða
Hjartað fyllir kvíða, kvíða
Engin orð, aðeins stuna
Ósigur þinn skaltu muna