Horft til baka
Þessi augu minna á herskip hjartans
Sem hljóðlaus sigla vokandi dimmrautt hafið
Tundurskeytaorðin finna í myrkrinu markið
Og móðurskip heilans liggur í djúpinu grafið

Og ég stari á þig í gegnum glasið og vökvann
Meðan grimmd þín flæðir bakvið lokaðar dyrnar
Dreg að mér andann og eigna mér glæran botninn
Út úr angóruvörum þínum standa þyrnar
Í myrkvuðu rúminu lifa minnislausir snákar
Og mjúkir kaktusar heitum örmum þig vefja
Þú sérð að koddinn er fylltur með fögrum orðum
Sem fanga þig nakta og þreyttan hug þinn sefja
Í þínu ljósa hári hláturinn sefur draumlaus
En hatrið nývaknað lærir strax hver á leikinn
Það er heitt hérna inni og allar dyr eru læstar
Eitthvað er að brenna en ég sé bara ekki reykinn
Á bankabók ástarinnar eru aðeins kossar kaldir
Og við klífum ísinn í von um að finna þar hita
En finnum aðeins lögmenn klædda kuldaúlpum
Sem kafa oní hjörtun og fá sér þar bita
Ástin á fleiri andlit en tekur að telja
Trúðurinn fleiri tár en harmur okkar beggja
Ef sál mín hefði vængi væri ´ún flogin fyrir löngu
Frjáls undan oki þessara gulu veggja