Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá
Liggur dáleiðandi þokan glugga þínum á
Himininn brotnar í ljóðum, nakið undur
Kristaldýr í garðinum molnar í sundur
Hálfluktum augum starði ég inn
Rafmagnað ljósið strauk mína kinn
Hvíslandi þögnin reis úr dvala í gær
Bergmál vorsins í garðinum hennar grær
Á heitum kvöldum hún kallar mig sinn vin
Með augu eins og demanta, sem lýsa upp himininn
Hún dansar fram á nætur í tunglsljósinu tryllt
Gulli roðið hár hennar þyrlast úfið, villt
Garðinn hennar vöktuðu sex japanskir vígamenn
Sem aldrei fóru af verðinum, nema einn og einn í senn
Ef þú vilt hana gleðja skaltu senda á morgun blóm
Hún hefur stærra hjarta, dýpri augu en páfinn í Róm
Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá
Mun dáleiðandi þokan liggja glugga þínum á
Augu þín sljóvga líkt og þú rýnir í svartan hyl
Milli þín og drauma hennar liggur fingurbreytt bil