Bubbi Morthens
Guðs Útvalda Þjóð
[Verse]
Likt og forðum að heiðnum sið
Að brenna menn á báli
Þeir herja á bæi, boða frið
Með glampa af israelsku stáli

[Verse]
Í minningu milljóna gasdauðra manna
Réttlæta morð á nýfæddu barni
Heiminum vilja sina og sanna
Að þeir séu guðs útvaldi kjarni

[Chorus]
Limlestir búkar
Neyðaróp
Fullorðin börnin ærir
Logandi helvíti
Sársaukahróp
Saklausir skotnir á færi

[Verse]
Sandurinn geymir sólhvit bein
Ryðgaðar striðsminjar
Er ekkert eftir nema minningin ein
Í loftinu dauðan þú skynjar
[Verse]
Í búðum flóttans lifir von
Um frjálst Palestínuríki
Að þjóðin muni eignast einn daginn son
Sem mun birtast í friðar liki

[Chorus]
Limlestir búkar
Neyðaróp
Fullorðin börnin ærir
Logandi helvíti
Sársaukahróp
Saklausir skotnir á færi

[Verse]
Í búðum flóttans lifir von
Um frjálst Palestínuríki
Að þjóðin muni eignast einn daginn son
Sem mun birtast í friðar liki

[Chorus]
Limlestir búkar
Neyðaróp
Fullorðin börnin ærir
Logandi helvíti
Sársaukahróp
Saklausir skotnir á færi