Mugison
Stingum af
Það er andvöku bjart
Himinn, kvöldsólar skart
Finnum læk, litla laut
Tínum grös, sjóðum graut
Finnum læk, litla laut
Tínum grös, sjóðum graut

Finnum göldróttan hval
Og fyndinn sel í smá dal
Lækjar nið, lítinn foss
Skeinu sár, mömmu koss
Lækjar nið, lítinn foss
Skeinu sár, mömmu koss

[Chorus]
Stingum af
Í spegilsléttan fjörð
Stingum af
Smá fjölskyldu hjörð
Senn fjúka barna ár
Upp í loft, út á sjó
Verðmæt gleði tár
Elli ró, elli ró

Hoppum út í bláinn
Kveðjum stress og skjáinn
Syngjum lag, spilum spil
Þá er gott að vera til
Syngjum lag, spilum spil
Þá er gott að vera til
Tínum skeljar, fjallagrös
Látum pabba blása úr nös
Við grjótahól í feluleik
Á hleðslu lambasteik
Við grjótahól í feluleik
Á hleðslu lambasteik

[Chorus]
Stingum af
Í spegilsléttan fjörð
Stingum af
Smá fjölskyldu hjörð
Senn fjúka barna ár
Upp í loft, út á sjó
Verðmæt gleði tár
Elliró, elliró