Friðrik Dór
Til hvers þá að segja satt?
[Verse 1: Friðrik Dór]
Hann beið færis undir rósarunnanum
Og er bráðin bærðist
Hann steig hratt úr skugganum
Loksins passar ásjónan og persónan
En fallið verður hátt af hesti hreppsstjórans
[Chorus: Friðrik Dór]
En hvers vegna ætti maðurinn að segja satt
Þegar lygin loðin getur flogið svona hratt?
Já til hvers þá að segja satt?
Hvers vegna ætti maðurinn að segja satt?
Hentu manneskju á bálið
Sjáðu augu fólksins ljóma glatt
[Verse 2: Bubbi Morthens]
Stolnum fjöðrum skreyttir hófu sig á flug
Hræddir menn sem allir héldu heimsku vera dug
En tíminn okkur teymir öll til dómarans
Já fallið verður hátt af hesti hreppsstjórans
[Chorus: Bubbi Morthens]
En hvers vegna ætti maðurinn að segja satt
Þegar lygin loðin getur flogið svona hratt?
Já til hvers þá að segja satt?
Hvers vegna ætti maðurinn að segja satt?
Hentu manneskju á bálið
Sjáðu augu fólksins ljóma glatt
[Outro: Bubbi Morthens, Friðrik Dór]
En hvers vegna ætti maðurinn að segja satt
Þegar lygin loðin getur flogið svona hratt?
Til hvers þá að segja satt?
Til hvers þá að segja satt?
Til hvers þá að segja satt?